Hér er ekkert að finna. Málfundafjelagið er liðið undir lok
FORVM POETICVM: Brenna

FORVM POETICVM

Málgagn Málfundarfjelags vinstrisinnaðra ungskálda

lunedì, aprile 10, 2006

Brenna

Er annað eins ljúfsárt og ást í meinum?

I
Á mörkum boða og banna
býr brennandi þrá
glæðist eldur í hjörtum
ástríður ólgandi
logandi ljómandi
leysa úr læðingi
ókunn öfl.

II
Í dagrenningu deyjandi eldurinn
aðeins askan minnisvarði næturinnar
nagandi handarbökin
kveðjast án kossa.

2 Comments:

Blogger Hjördís Alda said...

Þori ekki annað en að láta vaða, þó ég þori því varla.

9:25 PM  
Blogger Arngrímur Vídalín said...

Mér finnst þetta þokkalega flott, vel valin líking til að sýna andstæðurnar. Bara sko mína! :)

9:44 PM  

Posta un commento

<< Home