Hér er ekkert að finna. Málfundafjelagið er liðið undir lok
FORVM POETICVM: aprile 2005

FORVM POETICVM

Málgagn Málfundarfjelags vinstrisinnaðra ungskálda

sabato, aprile 23, 2005

Regndans örlaganna

Ég vil sitja
og horfa á röðulgeislann
rjóða Esjuna
og gylla hafið
en ég sé ekkert
fyrir regninu í augunum.

venerdì, aprile 22, 2005

Hverfulleiki sælureitsins

Þú birtist mér í draumi
og veittir mér lífsfyllingu,
sem ég barg af brunni vara þinna,
í faðmi sælunnar.

Svo birtist mér veruleikinn
og veitti mér náðarhöggið,
og þeytti mér vestur yfir Styx,
í andlegan faðm Hadesar.

lunedì, aprile 18, 2005

Náttúrubarn borgarinnar

Heyrið þér
hvernig nauðar í vindinum,
hvernig trén hríslast
og hvernig regndroparnir
dynja á glugganum,
svo eilíflega rytmískir?

Þetta er hrynjandi náttúrunnar.
Í honum felst orðlaus útskýring þess
hvers vegna lífið getur í senn verið
svo erfitt,
ljúfsárt
og æðislegt.

venerdì, aprile 08, 2005

Gengisfelling

*PÍP!*PÍP!*
Hvers virði er mannslífið?
*PÍP!*
Tvöþúsundþrjúhundruðogníutíu krónur.
*PÍP!*
Viltu poka?
*PÍP!*PÍP!*PÍÍÍ